Á Íslandi eru nú
skráðar um 452 tegundir villtra blómplantna. Þá eru byrkningar
ekki meðtaldir (þeir eru ekki blómplöntur), og ekki ræktaðar plöntur.
Slæðingar sem berast hingað öðru hverju en hafa ekki náð að nema land
varanlega, eru heldur ekki taldir með.
Íslenzkum blómplöntum má skipta í 3 flokka, tvíkímblöðunga,
einkímblöðunga og berfrævinga. Til tvíkímblöðunga telst flest af þeim
plöntum sem við í daglegu tali nefnum blóm, og til þeirra telst meiri
hluti þeirra 452 tegunda sem áður voru nefndar, eða alls um 303. Til
einkímblöðunga teljast um 145 tegundir, en það eru einkum grös og starir
auk nokkurra tegunda af lilju- og brönugrasaætt. Aðeins ein upprunalegra
íslenskra tegunda, einirinn, telst til berfrævinga, en auk hans eru
fáeinar innfluttar tegundir, einkum lerki, sitkagreni og stafafura
farnar að sá sér sjálfkrafa og mynda kjarr á örfáum stöðum, og vinna sér
því smátt og smátt ríkisborgararétt og ef þær eru taldar með höfum við 4
berfrævinga. Alls höfum við því 489 tegundir háplantna, og eru þá 37
byrkningar einnig taldir auk blómplantna. Lista yfir allar íslenzkar
blómplöntur og byrkninga til samans (háplöntur) má skoða með því að fara
til baka á heimasíðuna, og velja plöntulista.
Ef þú vilt kynnast íslenzkum blómplöntum betur og skoða myndir af þeim,
þá skaltu smella á nafn þeirra á listanum hér til vinstri.