Allstórvaxin skóf, þalið oft 5-10 sm í þvermál, fagurgrænt í vætu en gráleitt eða grábrúnt í þurrki. Bleðlar eru 1-2 sm eða breiðari, ætíð með fjölmörgum askhirzlum sem mynda djúpar lautir ofan í þalið. Efra borð er slétt, matt eða með ofurlitlum gljáa, loðnulaust. Neðra borð er ljós brúnt eða hvítleitt, rætlingar 0,5-2 mm á lengd, hvítir eða ljós brúnir, með dökkum, blásvörtum 0,2-1 mm breiðum hnyðlum. Sumar hnyðlur verða stærri og brjóta sér leið upp í gegn um miðlagið og grænþörungalagið, og verða þá sýnilegar frá efra borði sem dökkir blettir í vætu. Askhirzlur eru 2-6 mm í þvermál, dökk brúnar, í djúpum lautum á þalinu. Askarnir eru með fjórum 40-65 mikron löngum, tvíhólfa askgróum.
Þalsvörun:
K-, C-, KC-, P-.
Innihald: Engar fléttusýrur þekktar.
Móagrýta, Solorina
octospora, er nánast eins og skútagrýta í útliti, en
er afar sjaldgæf. Hún þekkist á átta minni gróum í hverjum aski, og
hefur auk þess rauða KC-svörun í miðlaginu vegna methýlgýrofórats
sem hún inniheldur.