Þalið hrúðurkennt, vörtótt
eða kúpt. Þalvörtur 0,5-1,2 mm í þvermál, hvítar. Askhirzlur eru
svartar, 0,4-1 mm í þvermál, í fyrstu flatar, niðurgrafnar í hæð við
þalið, með svartri eiginrönd og hrímuðum barmi eða vísi að hvítri
þalrönd utan með. Rísa síðar aðeins upp úr þalinu, og verða að lokum
kúptar. Askar með 8 gróum, gróin dökk brún, tvíhólfa, 16-24 x 7-9 μ.
Yfir- og undirlag dökk brúnt. Snædoppan vex á mosagrónum jarðvegi.
Hún er sjaldgæf, hefur aðeins fundizt á landræna svæðinu á
Norðausturlandi, einkum hálendinu.
Þalsvörun: K+ gul,
ath:
Innihald: Atranorin.