Kopararða
Biatora cuprea
hefur hvítt, hrúðurkennt þal
sem er reitskipt í miðju, en vottar fyrir laufskiptum jöðrum með
fíngerðum, svörtum línum á milli laufa. Hún ber ætíð mikið af dökk
brúnum eða nær svörtum askhirslum, einkum er jaðar þeirra dökkur.
Askhirslurnar eru í fyrstu flatar, en verða síðar kúptar, 0,5-1 um í
þvermál. Askarnir bera átta glær, einhólfa gró sem eru mjóoddbaugótt
í lögun.
Kopararðan vex á grónum jarðvegi í mólendi og snjódældum, einkum til
fjalla á norðanverðu landinu.