eða
Dýjahnokki (áður nefnd Mitrula gracilis) er
smávaxinn sveppur sem vex í þyrpingum í mosa í dýjum. Hann er nokkuð
algengur, einkum til fjalla. Sveppaldinið myndar gulan hnapp á
hvítleitum eða hálfglærum stilk. Asklagið þekur að
utan gula hnappinn.