eða roðakylfa
hefur fundizt á nokkrum stöðum á Norður- og Austurlandi.
Fagurkylfan er af ættkvísl kylfusveppa, en þeir hafa kylfulaga
sveppaldin sem rísa eins og fingur upp í loftið. Fagurkylfan er um
2-4 sm á hæð, er stökk í sér og brotgjörn. Kylfurnar eru ofurlítið
flatvaxnar og gjarnan með rauf eftir endilöngu. Kólflagið myndast
utan á yfirborði kylfunnar. Fagurkylfan á myndinni vex þarna í grasi
vöxnu, óræktuðu mólendi.
Fagurkylfa í móum sunnan
við stóru skriðuna á Þormóðsstöðum í Sölvadal, Eyjafirði þann 8.
ágúst 1998.