Flóra Íslands - vefsíða |
Upphaf vefsíðu um flóru Íslands má rekja til jóla á árinu 1998. Þá hófst smíði vefsíðu með upplýsingum um plöntur ásamt myndum og útbreiðslukortum tegundanna. Hún var síðan opnuð á neti Náttúrufræðistofnunar Íslands vorið 1999. Þar var hún gerð aðgengileg fyrir flóruvini með notandanafni og lykilorði á slóðinni www.ni.is/flora. Hugmyndin var að þessi vefsíða yrði síðar gerð aðgengileg almenningi á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar þegar hún yrði opnuð, en dráttur hefur orðið á að koma henni þar fyrir. Því var ákveðið að opna hana utan hennar á slóðinni www.floraislands.is. Efni síðunnar er mikið til það sama og áður, nema útbreiðslukortin fylgdu ekki í fyrstu. Nú eru hins vegar útbreiðslukort blómplantna og byrkninga komin á hana, og því verður gömlu síðunni fljótlega lokað. Að auki verður komið á framfæri lista yfir allar villtar plöntur á Íslandi, í fyrstu blómplöntur, byrkninga og fléttur, síðar var þörungum bætt við, og næst mun bætast við skrá yfir íslenska sveppi sem Helgi Hallgrímsson og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir hafa nýlega birt í Fjölritum Náttúrufræðistofnunar. Nafngiftir plantna og viðbætur við flóruna verða uppfærðar smátt og smátt eftir því sem ný þekking bætist við. Einnig er hugmyndin að birta smám saman héraðsflórur sem ekki hefur verið kostur á að birta annars staðar, og munu þær vonandi stuðla að því, að viðbótarþekking berist frá almenningi þegar ljóst verður hversu mikið vantar enn á þekkingu okkar á flóru landsins. Yfirlit það um efni þessarar vefsíðu sem hér sést til vinstri, gefur hugmynd um hvers má vænta af henni í framtíðinni. Allar ábendingar og athugasemdir við efni vefsíðunnar eru vel þegnar, og verður leiðréttingum komið á framfæri sé hægt að sannreyna þær. Upplýsingar óskast sendar á netfangið hkris@nett.is Öll fjölföldun og dreifing efnis vefsíðunnar, texta, ljósmynda og útbreiðslukorta er bönnuð nema með leyfi höfundar, Harðar Kristinssonar grasafræðings hkris@nett.is eða hkris@ni.is á Náttúrufræðistofnun Íslands á Akureyri. Leyfilegt er hins vegar að prenta efni af henni, myndir eða kort til eigin þarfa og nýta til kennslu. Þessi útgáfa vefsíðunnar var fyrst opnuð á sumardaginn fyrsta árið 2001. Þann 16. og 20. október 2001 var bætt inn upplýsingum um jarðhitagróður, lindagróður, lyngmóa og snjódældir, og einnig bætt við nokkrum tegundum. Listi yfir blómplöntur og byrkninga var uppfærður 26. október 2001 til samræmis við nýútkomið 2. bindi Flóru Norðurlanda. 20. maí 2002 var opnaður sá möguleiki að fletta upp á tegundum eftir latnesku tegundarheiti. Meiriháttar uppfærslur voru gerðar 21. september, 2. nóvember, 23. desember 2002 og 5. janúar 2003. Nú er hægt að fara beint í MYNDASAFN og skoða myndir af mosum, fléttum og sveppum án þess að velja tegund eftir nafni. Í febrúar, apríl og maí 2003 voru sett inn nokkur ný útbreiðslukort fyrir blómplöntur og byrkninga. Þann 6. júní 2003 var bætt inn lista Bergþórs Jóhannssonar yfir íslenzka mosa, og 1. ágúst sama ár var bætt við þrem tegundum, hásveifgrasi, grájurt og vatnsögn. 5. október voru plöntulistar uppfærðir, og sæþörungalista bætt við. Þann 25. október 2003 var bætt við lista Helga Hallgrímssonar yfir íslenzka land- og ferskvatnsþörunga aðra en kísilþörunga. Í ársbyrjun 2005 var lokið við að setja útbreiðslukort allra blómplantna og byrkninga inn á vefsíðuna. Á árinu 2003 varð sú breyting á fjármögnun vefsíðunnar, að Akureyrarsetur Náttúrufræðistofnunar keypti lénið og sér nú um að greiða af því öll gjöld og af vistun síðunnar. Öll vinna við efni og viðhald síðunnar er eftir sem áður framlag höfundar, Harðar Kristinssonar. Saga síðunnar aftur á bak: 7. okt. 2010 var bætt við nýrri grastegund, snoðfingragrasi (Digitaria ischaemum). 22. sept. 2010 var bætt við nokkrum fléttumyndum, og þrjár nýjar tegundir voru settar inn: gljádumba, glitskóf og blikskóf. 17. sept. 2010 var bætt við allmörgum myndum og fjórar fléttur voru settar nýjar inn, flösukrókar, dældaskóf, raufarbikar og tannbikar. 9. maí 2010 var sett inn handrit að flóru Hríseyjar. 6. maí var 11. árg. Ferlaufungs settur inn. 18. apríl 2010 var sett inn Flóra Húnavatnssýslu. 28. feb. 2010 var bætt in upplýsingum um flóruvini á fésbókinni. 22. jan. 2010 voru uppfærðir listar yfir vanskráða 5 x 5 km reiti í reitakerfi LMI. Einnig listi yfir fjölda tegunda skráðar á hvern reit í sama kerfi. Nú eru þar komnar viðhætur frá árinu 2009. 11. sept. 2009 var bætt við síðum fyrir knjápunt og haustlyng. 18. ágúst 2009 var allmörgum myndum af blómplöntum bætt við, og 4 nýjum tegundum að auki, blettafífli, arfafjólu, smánykurrós og þorskagini. 28. júní 2009 var kylfuskán bætt í fléttusafnið. 9. júní 2009 var bætt við 7 fléttutegundum: fölkrímu, jöklamerlu, jökulkrókum, goskrókum, tildurbikar, grástúfum og bjargstúfu. 30. maí 2009 var bætt við 7 fléttutegundum: gráskorpu, randskorpu, náttskorpu, svarðskjóðu, blikuglámu, hraufuglámu og völurílu. 1. febrúar 2009 voru uppfærð allmörg útbreiðslukort fléttna. 30. des. 2008 voru allmörg útbreiðslukort blómplantna uppfærð. 15. des. 2008 var plöntulisti háplantna uppfærður. 31. október var bætt við 4 hrúðurfléttum, stéttartörgu, mjölmerlu, múrglætu og kóralglætu. 24-29. ágúst 2008 var bætt við 21 tegund háplantna: fjallaskarfakáli, stormþul, lækjabrúðu, glæsifífli, höskolli, flæðarbúa, bakkaarfa, varmadeplu, varpatvítönn, smánetlu, apablómi, fitjanál, fjallakornblóm, flauelskornblómi, hagabrúðu, kjarrsveifgrasi, línarfa, rauðvingli, heiðavorblómi, snoðvorblómi og túnvorblómi. 25. jan. 2008 voru 100 útbreiðslukort blómplantna og byrkninga uppfærð, og 27. jan. 150 til viðbótar, og 1. febrúar enn 160. 6. jan. 2008 var þrem hrúðurfléttum bætt við, tírólamerlu, sinudoppu og grjótömbru. 21. des. 2007 var bætt við tveim hrúðurfléttum af ættkvíslinni Rhizocarpon, dularflikru og hraunflikru. 8. des. var bætt við nokkrum tegundum af hrúðurfléttum sem vaxa á túndrum miðhálendisins, freðsnepja, firnasorta, rústadyrgja, túndrumerla, hrímvarta, mosatarga, túndruslembra og einnig bætt myndum á nokkrar aðrar fléttusíður. 26. nóv. 2007 var bætt við leiðbeiningum með notkun nýja 5 x 5 km reitakerfisins, og settur inn listi yfir vanskráða 5 x 5 km reiti, og listi yfir hversu margar tegundir hafa verið skráðar í hvern reit. Þessir listar finnast með því að velja Reitkerfið undir Flóruvinum. Október 2007, bætt við tveim nýjum tegundum, kransarfa og grænstör, einnig settur tengill inn á tvo nýja plöntulista: Þörungatal og Sveppatal. 23. júní 2007. Bætt inn tveim tegundum: Sifjarsóley og hlíðableikja. Einnig bætt við nokkrum myndum annars staðar. Apríl-maí 2007: Tveir nýir slímsveppir, nýjar myndir af Alaskaösp og selju. Uppfærsla á Degi hinna villtu blóma. Í lok okt. 2006 var mánajurt bætt inn, og myndasafnið var uppfært svo finna mætti plöntur eftir útliti, þótt nafnið væri óþekkt. 7. - 9. október 2006 var skipt út eða bætt við allmörgum myndum af blómplöntum og byrkningum til viðbótar þeim sem fyrir voru. 14. sept. 2006 var bætt við nýjum myndum, og einni fléttu, birkiskeggi. 2. september 2006 var bætt við 9 tegundum blómplantna: hrísastör, höfuðklukku, móalógresi, skeljamuru, vætuskúf, hnoða-, brekku-, silfur- og garðamaríustakk. - 21. júní var ormagrösum bætt við flétturnar. 26. maí, dagur hinna villtu blóma. 7. maí 2006 var einni blómplöntu bætt við (selju) og 25. apríl 2006 var tveim nýjum fléttum bætt inn, móaþembu og blekþembu. 20. apríl 2006 bættist einn mosi, götulokkur, inn á síðuna. Þann 5. marz 2006 var bætt við nokkrum myndum af blómplöntum. 18. febrúar voru settar inn leiðréttingar við þörungalista Helga Hallgrímssonar, og hann lagfærður.. 11. febrúar 2006 var lista Starra Heiðmarssonar yfir fléttuháða sveppi, með samtals rúmlega 80 tegundum, bætt við fléttulistann. Þann 29. janúar 2006 var listi yfir íslenskar fléttur uppfærður, en 23 nýjar tegundir hafa bætzt við hann frá síðustu uppfærslu. 25. janúar 2006 var listi Helga Hallgrímssonar yfir íslenzka land- og ferskvatnsþörunga endurnýjaður. Helgi hefur nýlokið uppfærslu listans, og bætti jafnframt við kísilþörungum sem áður vantaði. 4. og 9. ágúst 2004 og aftur 9. september var bætt inn nokkrum myndum af aldinum íslenskra plantna. 3. júlí var bætt við nokkrum útbreiðslukortum, einkum hjá keppendum í þjóðarblómi Íslendinga. 17. maí 2004, dagur hinna villtu blóma. 7. maí var bætt inn upplýsingasíðu um flóruvini.18. apríl 2004 var bætt við 20 útbreiðslukortum blómplantna og byrkninga, og 3. apríl var bætt við 25. 20. og 28. marz og 2. apríl var bætt við allmörgum útbreiðslukortum fyrir fléttur. 30. janúar 2004 voru sett inn nokkur útbreiðslukort blómplantna, og 20 til viðbótar þann 22. febrúar 2004. 1.-2. janúar 2004 var settur upp möguleiki á að velja blómplöntur eftir myndum (Myndasafn), eins og áður hafði verið gert fyrir sveppi og fléttur. Síðustu breytingar eru tilgreindar á forsíðu. Í nóvember og desember 2004 hefur verið bætt inn um 290 nýjum útbreiðslukortum fyrir blómplöntur og byrkninga. Síðustu kortin í desember komust þó ekki inn á vefsíðuna fyrr en um 20. janúar 2005, vegna rúmleysis á vefþjóninum. 23. jan. 2005 var bætt við um 40 útbreiðslukortum fyrir fléttur. 11. marz 2005 var listi yfir blómplöntur og byrkninga uppfærður eftir nýjustu útgáfu norsku Lid-flórunnar (Reidar Elven 2005). Tveim mosum, dalaskeggja og melafaxa var bætt við 21. apríl 2005. Dagur hinna villtu blóma uppfærður 4. og 19. og 21. apríl 2005. Tólf sveppum var bætt við 22. maí 2005 og fimm nýjum fléttum var bætt við 6. maí 2005, spaðabreyskju, perluvoð, hreisturbroddum, netjubikar og törgudoppu. Háplöntulisti var uppfærður 2. júní. Þann 11. sept. 2005 var bætt 18 tegundum blómplantna inn á vefsíðuna. 22. og 23. október 2005 var bætt við allmörgum útbreiðslukortum, og 15.-16. október var bætt við 15 tegundum af mosum og fléttum. 5. nóvember 2005 var bætt við nokkrum sveppum á vefsíðuna. 21. nóvember var bætt við 5 tegundum fléttna. 4. desember 2005 var bætt við 4 tegundum fléttna. |