Hettumosaætt |
Ögurmosi |
Orthotrichaceae |
||
Ögurmosi (Ulota phyllantha) vex að jafnaði á klettum við sjó. Hann er algengastur við vesturströnd landsins, en finnst kring um landið þar sem klettar eru. Myndar oft ávalar smáþúfur af uppréttum sprotum. Blöðin á sprotunum eru áberandi undin eða hrokkin þegar þau eru þurr. Á enda laufprotanna myndar mosinn oft brúnar þyrpingar af æxliþráðum, sem greinilega má sjá ef myndin til hægri hér að neðan er stækkuð upp. |
||||
|
Myndin hér að ofan er tekin á Gálgakletti á Álftanesi 28. maí 1987. |
Nærmynd sem sýnir brúna æxliþræði á endum laufsprotanna. Hún er tekin við Lóndranga á Snæfellsnesi 21. júlí 2005 |
|||