Grýtumosaætt

Urðasnúður

Pottiaceae

Urðasnúður (Tortula subulata) finnst víða um land nema á miðhálendinu.  Hann vex á jarðvegi í klettum og klettaskorum, í urðum og hraunum, einnig á móabörðum og torfi. Mosinn er fagurgrænn, gróhirzlurnar sérlega langar og sívalar, ofurlítið sveigðar. Myndin að neðan sýnir ungar gróhirzlur, og ef tvísmellt er á myndina má greina brúnleitar hetturnar fremst á gróhirzlunum. Gróhirzlurnar dökkna síðan meira við þroskun og verða brúnar.

Myndirnar eru teknar í Gálgahrauni á Álftanesi 28. maí 1987.

tortusub1m.jpg (59166 bytes)

tortusub2m.jpg (93321 bytes)