Grýtumosaætt |
Hæruskrúfur |
Pottiaceae |
||
Hæruskrúfur (Syntrichia ruralis) er útbreiddur um allt land, þó algengari á Norðurlandi en á Suðurlandi. Sprotarnir breiða mjög vel úr sér í raka, og hefur blaðkan þá sérkennilega lögun, tiltölulega breið en mjókkar snöggt út í langan hárbrodd. Hæruskrúfurinn vex gjarnan á jarðvegsþöktum klettum eða steinum, oft við vörður eða fuglaþúfur. Einnig getur hann vaxið á þurrum melum eða sendnum jarðvegi eða í hraunum. |
||||
Myndin hér fyrir miðju er af þurrum hæruskrúf, tekin í Krossanesborgum við Akureyri í ágúst 1988. |
||||