Til baka

Tenglar að efni um flóru Íslands

Fáar vefsíður á netinu eru helgaðar íslenzku flórunni. Einna veglegust er síða sem hollendingur að nafni Dick Vuijk hefur sett upp. Hún er skrifuð á ensku og hollenzku og hefur að geyma margar góðar myndir af íslenzkum plöntum. Hann hefur farið margar ferðir til Íslands, nú síðast sumarið 2004, og tekið mikið af myndum úr íslenzkri náttúru og af íslenzku landslagi. Slóðin að þessari síðu er http://www.iceland-nh.net

Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur sett upp vefsíðu um Heiðmörk, og á henni eru allítarlegar upplýsingar um gróður í Heiðmörk með lista yfir tegundir sem þar finnast, ásamt myndum af þeim. Slóðin þangað er  http://www.skograekt.is/heidmork/grodur.html

Þeim sem eru að leita að íslenzkum nöfnum á plöntum er rétt að vísa á safnið Íslenzk plöntuheiti sem er á leiðinni inn á orðabanka Íslenzkrar málstöðvar. Í þessu safni eru um 10 þúsund íslenzk tegundarheiti ýmissa plantna. Aðeins hluti þeirra, nöfn á erlendum plöntum frá  A-C, en öll nöfn á íslenzkum plöntum, er kominn inn í orðabankann og aðgengilegur á netinu á slóðinni  http://herdubreid.rhi.hi.is:1026/wordbank/search   Til að flýta fyrir leit er rétt að takmarka leit við safnið Plöntuheiti (íslenzk).

Með því að fara inn á http://linnaeus.nrm.se/flora/index/welcome.html má fá mjög góðar upplýsingar um villtar plöntur sem vaxa í Svíþjóð. Stundum má finna þar sjaldgæfar, íslenzkar plöntur sem vantar á íslenzku flóruvefsíðuna. Einnig má þar finna útbreiðslukort tegundanna í Skandinavíu og á norðurhjaranum.

Til baka