Barnamosaætt |
Rauðburi |
Sphagnaceae |
||
Rauðburi (Sphagnum warnstorfii) er nokkuð útbreiddur um allt landið, en í minna magni en bleytuburi. Hann vex í ýmis konar deiglendi, mýrum, við læki og í rökum fjallshlíðum og snjódældum. Hann er oftast mismunandi mikið rauðleitur, stundum dökkrauður eins og á myndinni hér að neðan, og má oft þekkja hann á rauða litnum. |
||||
Myndin er tekin úti á Bæjarnesi milli Kollafjarðar og Kvígindisfjarðar í Austur-Barðastrandasýslu 24. júlí árið 1988. |
||||