Til baka

Snjódældagróður

Snjódældagróður eru samfélög plantna sem illa þola veðurharða íslenzka vetur án skjóls. Eitt af því sem getur veitt þeim skjól er örugg snjóþekja, sem helzt er til staðar í dældum á nægilega snjóþungum stöðum til þess að snjóinn leysi ekki alveg í hlýindaköflum að vetrinum. Annað sem getur veitt þeim skjól er kjarr eða skóglendi, sem bæði tryggir visst skjól og stuðlar einnig að jafnri snjóþekju í skógarbotninum.

snjodald1r.jpg (201564 bytes)

snjodald2r.jpg (210881 bytes)

Hér að ofan má sjá dæmigerða snjódæld eins og þær eru algengastar. Tryggustu einkennistegundirnar eru grámulla og fjallasmári, tvær tegundir sem eru nánast alveg bundnar snjódældum. Grasvíðir fylgir þeim nær alltaf og eins kornsúra, þótt þær þrífist einnig ágætlega í öðrum gróðurlendum. Hér má greina fleiri algengar fylgitegundir snjódælda til fjalla, en það eru blágresi, brennisóley, kornsúra og fjallafoxgras auk grámullu og fjallasmára. Báðar þessar myndir eru frá Neshálsi við Loðmundarfjörð í 430 m hæð yfir sjó.
Fjalladúnurt og rjúpustör vaxa í snjódældum þar sem raki er, sú fyrrnefnda einkum í djúpum bollum, en rjúpustörin í rökum bollum og meðfram lækjum. Mosalyng heldur sig einnig mest við snjódældir. Aðrar fylgitegundir snjódælda, sem ekki eru þó ekki eins háðar þeim, eru fjalladepla, fjallafoxgras og klukkublóm

Að neðan til vinstri er fjallasnjódæld þar sem mosinn snæhaddur leikur stórt hlutverk. Auk hans er grasvíðir ríkjandi, en einnig má sjá nokkuð af fjallasmára og kornsúrublöðum.  Til hægri er dæmigerð snjódæld af þeirri gerð sem einkenna snjóþyngstu héruð landsins á láglendi. Einkennistegundir eru burknarnir þúsundblaðarós og skollakambur.

snjodald4r.jpg (158517 bytes) snjodæld3r.jpg (200691 bytes)
Í sumum snjódældum til fjalla getur snjór legið svo lengi, að vaxtartíminn verður of stuttur fyrir ýmsar af snjódældaplöntunum, eins og t.d. fjallasmára. Þá verður hélumosi oft ríkjandi ásamt grasvíði, og eru þær kallaðar hélumosadældir. Auk þeirra er oft eitthvað af grámullu og kornsúru í þessum dældum, og stundum fleiri snjódældamosum. Engin mynd er tiltæk eins og er til að sýna hélumosadæld.