Rytjumosaætt

Tjarnakrækja

Amblystegiaceae

Tjarnakrækja (Scorpidium scorpioides) er algengur mosi um land allt, bæði á láglendi og hálendi.  Hann vex mest á kafi í tjarnabotnum og grunnum stöðuvötnum. Einnig er hann oft marandi í vatni í rennblautum flóum. Tjarnakrækjan myndar fremur gildvaxna, brúna, svartleita eða grænbrúna sprota. Hún myndar sjaldan gróhirzlur.

Myndin er tekin í Krossanesborgum við Akureyri 17. júlí 1988.

scorpsco1m.jpg (122904 bytes)