Skeggmosaætt |
Fjörukragi |
Grimmiaceae |
||
Fjörukragi (Schistidium maritimum) er algengur meðfram ströndinni allt í kring um landið, nema við sendna suðurströndina. Hann vex í sjávarhömrum, klettum og grjóti við sjóinn. Hann myndar þétta, ávala púða á grjótinu. Gróhirzlurnar eru afar stilkstuttar, standa lítið upp úr púðanum. |
||||
Myndin er tekin á Gálgakletti á Álftanesi. |
||||