Skeggmosaætt

Gullinkragi

Grimmiaceae

Gullinkragi (Schistidium confertum) vex á steinum og klettum og er útbreiddur um allt landið.  Hann myndar smáa, þétta bólstra á klettunum. Blaðsprotar mosans eru brúnir eða brúngrænir á litinn, og gróhirzlurnar eru gulbrúnar eða ljósbrúnar.  Á myndinni hafa þær flestar opnað sig, og er því tannkransinn í opi þeirra áberandi.

Myndin er tekin við Þvergil á Flateyjardalsheiði 17. júlí árið 1988.

schiscon1m.jpg (79318 bytes)