|
Rauðleppur
(Scapania uliginosa) vex í lindalækjum og fjallatjörnum, marar
oft í kafi. Sprotarnir eru dökkir, grænleitir, rauðbrúnir eða
brúnir á litinn. Blöðin standa í tveim röðum eftir stönglinum,
klofin í tvo misstóra sepa. Blaðseparnir eru breiðir, nær
kringlóttir, ávalir í endann, innsveigðir og íhvolfir. Rauðleppur er
algengastur á Vestfjörðum og um miðsvæði Austfjarða, en fremur
sjaldséður annars staðar á landinu. |