Nistilmosaætt

Lauganistill

Ricciaceae

Lauganistill (Riccia beyrichiana) er soppmosi sem myndar stóra, skófarkennda, fagurgræna kringlótta hvirfingu af aflöngum blöðum sem vaxa út frá miðju. Hann vex einkum í leirflögum, oft í volgum leirflögum þar sem jarðhiti er, en kemur einnig fyrir á köldum stöðum. Jaðrar bleðlanna eru áberandi upphleyptir.

Myndin fyrir miðju er tekin við jarðhita í Bjarnarflagi í Mývatnssveit í ágúst 2001, en myndin til hægri er tekin við Reykjalaug í Fnjóskadal 13. júní árið 2005.

riccibey1m.JPG (1260013 bytes)

riccibay3m.jpg (119584 bytes)