Tildurmosaætt

Runnaskraut

Hylocomiaceae

Runnaskraut (Rhytidiadelphus triquetrus) er fremur grófgerður mosi með fjaðurgreinda, gulgræna sprota. Blöðin eru hjartalaga, aðlæg neðan til en útstæð ofan til, oddmjó. Stöngullinn er brúnn eða rauðleitur. Runnaskrautið vex í móum, kjarrlendi, skógum og í hraunbollum. Það er algengt um láglendi landsins, en er lítið inni á hálendinu.

rhydetri1m.jpg (71422 bytes)

rhydetri2m.jpg (70198 bytes)

rhydetri3m.jpg (104161 bytes)

Myndin af runnaskrauti hér að ofan er tekin í Gálgahrauni á Álftanesi 28. maí 1987.

Myndirnar hér að ofan og til hægri eru teknar í Barmahrauni í Reykhólasveit 6. júlí 2005.