Skeggmosaætt

Hraungambri

Grimmiaceae

Grámosi eða gamburmosi er þessi mosi nefndur í daglegu tali, en hefur hlotið tegundarheitið hraungambri (Racomitrium lanuginosum). Þetta er einn algengasti og mest áberandi mosinn á öllum suður- og vesturhluta Íslands svo og í strandhéruðum Austurlands.  Hann er einn fyrsti landneminn í nýjum hraunum. Við úthafsloftslag á snjóléttum svæðum verður hann einráður á allmörgum áratugum, og myndar samfelldar, mjúkar mosaþembur á 100 ára gömlum hraunum og eldri. Á snjóþyngri svæðum með landrænna loftslagi nær hann ekki að kveða niður keppinauta sína, sem þá verða stundum ráðandi í gróðurfari, einkum hraunbreyskja (Stereocaulon vesuvianum).

racomlan2m.jpg (82087 bytes)

racomlan3m.jpg (65195 bytes)

racomlan2m.jpg (64939 bytes)

Hér að ofan sést nærmynd af hraungambra, og ef vel er að gætt má sjá á honum gróhirzlur í miðju myndarinnar. Hún er tekin í Álftaneshrauni 3. maí 2007.

Mosaþemba með hraungambra í Skaftáreldahrauni, myndin tekin í júní árið 1986.

Nærmynd af mosaþembu með hraungambra í Skaftáreldahrauni, myndin er tekin í júní árið 1986.