Skeggmosaætt

Hærugambri

Grimmiaceae

Hærugambri (Racomitrium canescens) er útbreiddur um allt land, einkum þó á landræna svæðinu norðan jöklaflétta. Þó er ekki nándar nærri eins mikið af honum og frændum hans, melagambra og hraungambar.   Hærugambrinn vex á melum, klöppum og mólendi.  Á myndinni hér að neðan vex hærugambri hægra megin, en dekkri mosinn vinstra megin er melagambri.

Myndin er tekin í Krossanesborgum við Akureyri í ágúst árið 1988.

racomcan1m.jpg (110699 bytes)