Skeggmosaætt |
Lækjagambri |
Grimmiaceae |
||
Lækjagambri (Racomitrium aciculare) vex einkum við ár og læki, oft á steinum í lækjum, eða í klettum við fossa. Hann vex víða um land, en ekki mjög algengur. Blöðin hafa engan hárodd, en eru ávöl og tennt í endann. Greinar eru nokkuð langar og samsíða stöngli, einkum þegar hann vex á kafi og vísar undan straumi. |
||||
Myndin er tekin uppi á Mosfellsheiði 1. ágúst 1987. Gróhirzlur eru sýnilegar hér og hvar innan um blaðsprotana, ef myndin er stækkuð. |
||||