Trefjumosaætt |
Móatrefja |
Ptilidiaceae |
||
Móatrefja (Ptilidium ciliare) er soppmosi sem vex í margvíslegu landi, t.d. sem undirgróður í lyngmóum eða kjarri, en einnig á klettum eða birkistofnum. Móatrefjan er oftast brúnleit á litinn, sjaldnar alveg græn. Hún þekkist bezt á blöðunum sem eru sepótt, og blaðrönd sepanna er þéttsett þráðlaga tönnum. Móatrefjan er algeng um allt land nema á eldgosabeltinu, þar er hún fáséð. |
||||
Myndin af móatrefju er tekin í Vaglaskógi 15. september 1992. |
||||