Haddmosaætt

Snæhaddur

Polytrichaceae

Snæhaddur (Polytrichum sexangulare) vex nær eingöngu í snjódældum þar sem snjór liggur langt fram á vor. Hann er nokkuð algengur hátt til fjalla og annars staðar þar sem snjóþungt er. Gróhirzlur í fyrstu grænar eins og á myndinni hér að neðan, en verða síðar gulbrúnar eða rauðbrúnar, 5-6-strendar með skörpum kanti. Hettan er brún, sést vel á myndunum.

Myndin fyrir miðju er tekin í norðan í jökulskarði við Snæfellsjökul 21. júlí 2005, en sú til hægri í Hlíðarfjalli við Akureyri 19. júlí 1988

polytsex3m.jpg (43539 bytes)

polytsex2m.jpg (48631 bytes)