Haddmosaætt |
Gráhaddur |
Polytrichaceae |
||
Gráhaddur (Polytrichum piliferum) er nokkuð algengur um landið, en þó virðast eyður í útbreiðslu hans á Norðurlandi. Hann vex einkum í sendnum jarðvegi, hraunum og yfir klöppum, eða í skurðbökkum. Myndin hér að neðan er af karlplöntu, sem ekki þroskar gróhirzlur. Á myndinni má sjá græna laufsprota og rauðgula, skálarlaga karlknappa, en í þeim myndast frjóhirzlur mosans. |
||||
Myndin er tekin á Skollholti við Grundartanga í Hvalfirði 30. maí árið 1997. |
||||