Haddmosaætt

Mýrhaddur

Polytrichaceae

Mýrhaddur (Polytrichum commune) er nokkuð algengur víðast hvar á landinu, en gloppur koma fyrir í útbreiðslu hans. Hann er óvenju stórvaxinn miðað við mosa, getur mest orðið allt að hálfur metri á hæð. Blaðsprotar hans eru með nokkuð stórgerðum, oddmjóum blöðum, og gróhirzlustilkarnir á sprotaendunum eru nokkuð langir og uppréttir, dökkrauðir eða rauðbrúnir. Gróhirzlan er áberandi ferstrend með skörpum brúnum, fremur stutt miðað við breidd. Hettan er loðin eins og á öllum haddmosum, síð með fagurbrúnni trjónu.  Mýrhaddurinn vex í mýrlendi og deigu graslendi, einnig við hveri og laugar.

polytcom2m.jpg (128456 bytes)

polytcom1m.jpg (151282 bytes)

polytcom3m.jpg (72588 bytes)

Myndin hér að ofan er tekin í Belgjarskógi í Mývatnssveit í ágúst 1962

Myndin fyrir miðju er tekin við Langavatn á Snæfellsnesi 14. ágúst 1989.

Nærmynd af gróhirzlum mýrhaddsins er tekin í Kolgrafarfirði á Snæfellsnesi 10. júlí 2011.