Hnokkmosaætt

Lindaskart

Bryaceae

Lindaskart (Pohlia wahlenbergii) er algengur mosi um allt land og vex í votlendi, einkum í dýjum þar sem hann myndar oft stórar, samfelldar ljósgrænar breiður. Sama gildir raunar einnig um dýjahnapp, og ganga þessar tvær tegundir fremur öðrum mosum í daglegu tali undir nafninu dýjamosi. Blöð lindaskartsins hrinda mjög frá sér vatni, og má því oft sjá stórar perlur vatnsdropa liggja ofan á mosabreiðunni. Gróhirzlurnar eru drjúpandi.

Báðar myndirnar af lindaskarti eru teknar í Hlíðarfjalli við Akureyri 19. júlí 1988

pohliwah1m.jpg (91250 bytes)

pohliwah2m.jpg (71592 bytes)