Haddmosaætt

Dverghaddur

Polytrichaceae

Dverghaddur (Pogonatum nanum) er nokkuð algengur á Vesturlandi, en afar sjaldgæfur annars staðar á landinu. Hann vex einkum á þéttum jarðvegi utan í skurðbökkum, á melum eða í hraunum. Hann er dvergvaxinn, gróhirzlustilkarnir oft aðeins hálfur til rúmlega sentimetri á lengd.   Dverghaddur hefur óvenju langlíft frumþal, sem myndar stundum áberandi græna flekki þar sem dverghaddur vex.

Myndin er tekin í Gálgahrauni á Álftanesi 28. maí árið 1987

pogonnan1m.jpg (55381 bytes)