Strýmosaætt

Fjallahnappur

Bartramiaceae

Fjallahnappur (Philonotis tomentella) vex í raklendi, á áreyrum, blautum sandi, á lækjarbökkum og í mýrlendi. Hann hefur fremur fíngerða sprota sem eru ljósgrænir efst, en dökkbrúnir neðar og með dökkbrúna rætlinga. Gróhirzlur eru breiðegglaga eða nær hnöttóttar, grænar í fyrstu, síðar brúnar og djúpgáróttar með aldrinum þegar þær þorna. Þær sitja á löngum, rauðbrúnum stilk. Fjallahnappur finnst á víð og dreif um allt landið.

Myndin fyrir miðju er tekin 22. júní 2005 í blautri mýri með lindavatni í hlíðinni ofan við Þverbrekku í Öxnadal.

philotom1m.jpg (86015 bytes)