Hnappmosaætt |
Dýjahnappur |
Bartramiaceae |
||
Dýjahnappur (Philonotis fontana), stundum einnig nefndur dýjamosi, er mjög algengur um allt land bæði á láglendi og hátt til fjalla. Dýjahnappurinn vex einkum í dýjum og við lindir, einnig á áreyrum og við læki, og gefur oft vísbendingu um staði þar sem ferskt vatns streymir úr jörðu. Hann hefur fremur granna, ljósgræna sprota, sem oft mynda stórar, samfelldar ljósgrænar breiður við kaldar uppsprettur. Gróhirzlurnar eru fremur stuttar, egglaga eða nær hnöttóttar, álútar, í fyrstu grænar en dökkna síðar og verða brúnar með aldrinum. |
||||
Myndin er tekin í Goðalandi við Þórsmörk 25. júní árið 1988. |
||||