Súrsmæruættin |
Súrsmæra |
Oxalidaceae |
||
|
Súrsmæra (Oxalis acetosella) er afar sjaldgæf jurt á Íslandi, sem nær eingöngu finnst á nokkrum stöðum á Austurlandi. Hún er friðuð samkvæmt náttúruverndarlögum. Blöð súrsmærunnar minna mjög á blöð hvítsmára, nema að þau hafa skerðingu að framan. Blómin eru þó mjög ólík, þar sem þau eru miklu stærri, regluleg, fimmdeild og eru krónublöðin hvít með bláum æðum. Súrsmæran vex ætíð í skugga, annað hvort í skógarbotni eða í gjótum milli steina þar sem skógar nýtur ekki. |
||||
|
Myndin af súrsmæru er tekin í skógarreit við Fífilgerði í Eyjafirði. Þangað var hún flutt fyrir hálfri öld síðan, og hefur breiðst vel út í skógarbotninum. |
||||
|
|
||||