 |
 |
 |
| Barðastrý |
Stjörnumosi |
Hraungambri |
Á
Íslandi eru nú þekktar um 600 tegundir af mosum. Meginhluti íslenzkra mosa er af
tveim ólíkum flokkum sem nefnast laufmosar og soppmosar. Mun fleiri tilheyra laufmosum,
en af þeim flokki eru bæði barðastrý og hraungambri sem sjást á myndunum hér að
ofan. Líkami laufmosanna er neðantil myndaður af grænum sprotum sem eru þétt settir
örsmáum, þunnum laufblöðum. Á toppi blaðsprotans myndast örsmáar egghirzlur og
frjóhirzlur, og þar á sér stað frjóvgun eggfrumnanna. Af okfrumu þeirri sem myndast
við frjóvgunina vex upp langur stilkur, sem getur verið grænn eða rauðbrúnn á
litinn, og á toppi þessara stilka myndast hnapplaga gróhirzlur, sem oft eru nefndir
baukar. Á toppi bauksins situr oft lausleg hetta, sem síðar dettur af. Þegar
gróhirzlurnar þroskast, myndast lok á toppi þeirra, sem opnast þegar gróin
þroskast. Það vaxtarlag sem hér hefur verið lýst má greina allvel á barðastrýinu
á myndinni til vinstri.
Til
hægri má sjá þykka mosaþembu gerða af hraungambra, en það er tegundarheiti þess
mosa sem oft myndar þykkar breiður á hrauni við Suðaustur-, Suður- og Vesturströnd
landsins. Í daglegu tali er hann oftast nefndur grámosi eða gamburmosi.
Soppmosar
mynda ýmist flata, jarðlæga blaðsprota, eða blaðkenndar skófir eins og
stjörnumosinn á myndinni fyrir miðju hér að ofan. Hann ber skálar með kringlóttum
æxliknöppum, sem hann fjölgar sér með. Einnig myndar hann stjörnulaga egghirzlur á
alllöngum stilk, og fær af þeim nafnið. Egghirzlur þessar getið þið skoðað með
því að velja stjörnumosann í listanum hér til hliðar.
Eini
íslendingurinn sem lagt hefur stund á mosaflóru Íslands af nokkurri alvöru, er
Bergþór Jóhannsson. Hann starfar við Náttúrufræðistofnun Íslands, og hafa
niðurstöður af mosarannsóknum hans birzt í Fjölritum Náttúrufræðistofnunar, alls
hátt á annað þúsund blaðsíður. Rit hans hefur verið aðalheimild upplýsinga um
mosa á þessari vefsíðu, og hann hefur einnig verið til leiðsagnar í mörgum ferðum
sem farnar voru til að taka myndir af íslenzkum mosum. Án hans aðstoðar hefðu fáir
mosar ratað inn á þessa vefsíðu. |