Skænumosaætt

Lindafaldur

Mniaceae

Lindafaldur (Rhizomnium magnifolium) vex einkum í vætu, einkum við lindir, dý og læki, en einnig í mýrum. Hann ber nokkuð stór blöð sem eru þunn eins og skæni, útrétt og gegnsæ í vætu, en oft nokkuð undin í þurru, heilrend. Stönglar mosans eru þétt settir brúnum rætlingum neðan til og upp fyrir miðju.  

Myndin fyrir miðju er tekin 22. júní 2005 í mýrlendi með lindavatni í hlíðinni ofan við Þverbrekku í Öxnadal.

mniummag1m.jpg (80579 bytes)