Stjörnumosaætt |
Stjörnumosi |
Marchantiaceae |
||
Stjörnumosi (Marchantia polymorpha) eða dýjaskóf eins og hann hefur einnig verið nefndur, er algengur í dýjavætum um allt land. Hann hefur breið og skófarkennd blöð, sem oftast bera skálar með æxlikornum (myndin t.v.). Stjörnumosinn er sérbýlisjurt, og þekkjast kvenplönturnar á stjörnulaga þyrlum með mjóum örmum sem bera egghirzlur á neðraborði (myndin fyrir miðju), en karlplönturnar á breiðarma þyrlum sem bera frjóhirzlur á neðra borði (myndin til hægri). Eftir frjóvgun vaxa gróhirzlur upp úr egghirzlunum neðan á kvenþyrlunum. Ítarlegri upplýsingar um stjörnumosann má finna í grein eftir Helga Hallgrímsson í Náttúrufræðingnum bls. 155 árið 2000. |
||||
Myndin lengst til hægri er tekin í Álftavatnskrókum á Skaftártungnaafrétti í ágúst 1962. |
||||