| Til baka | Lyngmóar |
|
Lyngmóar eru líklega eitt útbreiddasta gróđurlendi á Íslandi. Ţeir eru mjög mismunandi ađ gerđ eftir stađháttum, loftslagi og hćđ yfir sjávarmáli. Ţessir breytilegu stađhćttir ásamt beitarsögu ţeirra ráđa mjög tegundasamsetningu gróđurfélaganna. Ţar sem landiđ er skjóllítiđ, á bungum og rindum ţar sem snjóinn blćs af landinu á vetrum, eru líkur á ađ krćkilyng, beitilyng og holtasóleyjar séu ađaltegundir ţeirra, og ef til vill sortulyng og bláberjalyng. Í skjóllegu landi í lćgđum, og ţar sem snjóţungt er á vetrum, eđa kjarr hlífir gróđrinum er líklegt ađ bláberjalyng, ađalbláberjalyng ásamt međ krćkilyngi séu ađaltegundirnar, oft einnig međ gulvíđi og fjalldrapa. Ţar sem loftslag er mjög hafrćnt er líklegt ađ mosarnir hraungambri eđa melagambri verđi áberandi í ţúfum. Til fjalla er líklegt ađ sauđamergur, mosalyng, grasvíđir eđa jafnvel fjallabrúđa séu innan um krćkilyngiđ. Ţar sem loftslag er landrćnt er líklegt ađ meira sé af holtasóley í berangursmóum en ella, og einnig gćtu veriđ ljósar fléttur eins og skollakrćđa, hreindýrakrókar og maríugrös innan um. |
||
|
![]() |
|
| Lyngmóar međ krćkilyngi, beitilyngi, holtasóleyjum og hraungambra. Móar af ţessari gerđ eru oft fremur smáţýfđir. | Samskonar móar í návígi. Auk áđurgreindra tegunda má einnig greina stinnastör og melagambra á myndinni. | Hér eru fléttur mest áberandi í gróđri, einkum hreindýrakrókar. Nokkur hraungambri er á ţúfnakollum, grös í dćldum en annars krćkilyng, gulvíđir og fjalldrapi.. |
| Á myndunum hér ađ neđan sést til vinstri hvernig landslagiđ mótar lyngmóana. Á hćđarbrúninni međfram dćldinni eru krćkilyngsmóar, en niđri í henni ţar sem snjórinn skýlir betur, eru einkum ađalbláberjalyng og bláberjalyng. Hinar myndirnar sýna lyngdćldir međ bláberjalyngi og ađalbláberjalyngi, fyrir miđju er krćkilyng innan um, en til hćgri hrútaberjalyng. Ađalbláberjalyng vex á Suđurlandi lítiđ nema til fjalla eđa í djúpum dćldum, en í snjóţungum sveitum geta ţćr hins vegar ţakiđ heilar hlíđar eins og í Böggvisstađafjalli viđ Dalvík, og í úthluta Köldukinnar. | ||
| Bláberjalyng í botni dćldar, en krćkilyng á börmunum. Myndin er frá Gemlufallsdal 1968 og efst á myndinni sér upp í Gerđhamrahvilft. |
Bláberjalyngsmóar međ ađalbláberjalyngi, bláberjalyngi og krćkilyngi. Myndin er tekin í Brúnuvík eystra sumariđ 2001. |
Bláberjalyngsmóar međ ađalbláberjalyngi, bláberjalyngi og hrútaberjalyngi. Frá Eyjafirđi 1963. |