Brúskmosaætt

Dældahnúskur

Dicranaceae

Dældahnúskur (Kiaeria starkei) vex einkum í snjódældum, lyngbollum, lækjargiljum eða hraungjótum. Hann er algengur um norðanvert landið, lítið á láglendi Suðurlandsins. Hann vex gjarnan í þéttum brúskum eða breiðum, hefur bogsveigð blöð sem oft vísa til einnar hliðar, og gróhirzlurnar eru einnig bognar og hliðsveigðar.

Myndin er tekin í Hlíðarfjalli við Akureyri 19. júlí 1988.

kiaersta1m.jpg (103603 bytes)