Brúskmosaætt |
Lautahnúskur |
Dicranaceae |
||
Lautahnúskur (Kiaeria falcata) er fíngerður mosi sem oft vex í þéttum breiðum. Hann finnst víða um landið en er ekki mjög algengur. Hann vex einkum til fjalla, oft í lautum þar sem snjór liggur lengi. Myndirnar hér að neðan voru teknar í þoku og rigningu hátt uppi í fjöllum norðan Fjallabaksleiðar nyrðri, en þar myndaði hann þessa fallegu, hnöttóttu bólstra meðfram stórum skafli sem var að bráðna. |
||||
Myndirnar eru teknar uppi á fjallaklasa syðst í Grænafjallgarði við Langasjó sumarið 2001. |
||||