Sefætt

Stinnasef

Juncaceae

Stinnasef (Juncus squarrosus) er afar sjaldgæf jurt á Íslandi, fundin á nokkrum stöðum á Austfjörðum og fjórum stöðum í Strandasýslu á Vestfjörðum. Þetta er stórvaxið sef, blöðin stinn og rennulaga,  nokkuð gróf, í þéttum toppum sem geta orðið meir en metri í þvermál. Blómin eru brún og standa gjarnan í þyrpingum á tveim hæðum. Stinnasefið vex í deiglendi, einkum oft meðfram lækjum uppi í hlíðum.

Myndin af stinnasefi er tekin í Haga við Mjóafjörð þann 26. júlí 2002.

juncusqu1b.jpg (25942 bytes)