Faxmosaætt

Melafaxi

Hypnaceae

Melafaxi (Hypnum revolutum) er fíngerður mosi með jarðlægar eða uppsveigðar, oft fjaðurgreindar greinar. Blöðin eru oft áberandi einhliða sveigð, kúpt og með löngum oddi. Melafaxi er algengur mosi um allt land og vex utan í klöppum eða á melum og í skriðum.

Myndin af melafaxa fyrir miðju er tekin á klöpp í Leifsstaðabrúnum í Kaupangssveit 14. apríl 2005, en myndin til hægri þann 21. júní sama ár.

Greinandi: Bergþór Jóhannsson.

BR-16991.JPG (650552 bytes)

hypnurev2m.jpg (127960 bytes)