Tildurmosaætt

Tildurmosi

Hylocomiaceae

Tildurmosi (Hylocomium splendens) er einn af algengustu mosum Íslands, og vex oftast í þurru mólendi, kjarri og skógarbotnum, eða jafnvel graslendi. Hann er fremur auðþekktur, myndar tví- til þrífjaðraða sprota með rauðbrúnum stöngli. Nýir sprotar vaxa jafnan upp frá miðjum eldri sprotum, og geta sprotarnir því virzt tröppulaga ef nokkurra ára sprotar varðveitast milli ára eftir að hafa tildrað sér hver ofan á annan..

Myndin af tildurmosa er tekin á Hallormsstað 24. ágúst 1988

hylocspl3m.jpg (169739 bytes)