Skeggmosaætt

Hrokkinskeggi

Grimmiaceae

Hrokkinskeggi (Grimmia torquata) er algengur á Vesturlandi og meðfram suður- og austurströndinni, lítið á Norðausturlandi. Hann vex utan í klettum, í bollum og hraungjótum, oft á fremur skuggsælum stöðum. Hrokkinskeggi myndar fagurgræna, kringlótta púða.  Í þurrki eru blöðin hrokkin, og jafnframt undin utan um stöngulinn.

Myndin er tekin í Gálgahrauni á Álftanesi 28. maí 1987.

grimmtor1m.jpg (106781 bytes)