Skeggmosaætt

Snúinskeggi

Grimmiaceae

Snúinskeggi (Grimmia funalis) myndar mjúka, loðna púða á steinum, klettum og í hraunum. Hann er nokkuð útbreiddur um allt landið, virðist þó algengari í strandhéruðum vestan- og suðaustanlands en annars staðar.  Blöð mosans eru eins og snúin utan um stöngul blaðsprotans, og þar af dregur hann nafnið. Gróhirzlustilkurinn er einnig snúinn, og auk þess hlykkjóttur.

Myndin er tekin í Krossanesborgum við Akureyri 19. júlí 1988

grimmfun1m.jpg (98311 bytes)