Krækilyngsætt

Krækilyng

Empetraceae

Krækilyng (Empetrum nigrum) er ein af algengustu jurtum landsins og vex í lyngmóum, í grýttum melum og jafnvel í deiglendi.  Það er oft fremur á berangri en á skjólríkum stöðum.  Það skiptist í tvær deilitegundir, ssp. nigrum og ssp. hermaphroditum.  Sú fyrrnefnda hefur að jafnaði einkynja blóm, en sú síðari tvíkynja.  Einnig hafa þær mismunandi litningatölu.  Deilitegundin hermaphroditum er miklu algengari á Íslandi en hin.  Hana má m.a. þekkja á því, að fræflar hanga oft utan á berjunum þegar þau hafa verið tekin af lynginui.

Myndin til vinstri af blómstruðu krækilyngi er tekin í Elliðaárdal vorið 1982, en myndin af berjunum er tekin í Jafnaskarði í Borgarfirði 11. september 1987.

empetnig2b.jpg (114446 bytes)

empetnig1b.jpg (165742 bytes)