Rytjumosaætt

Móasigð

Amblystegiaceae

Móasigð (Sanionia uncinata) er einn af allra algengustu mosum á Íslandi. Hann finnst í mjög margvíslegum gróðurlendum, bæði í skóglendi og í móum, en einnig á klettum, steyptum veggjum, á trjábolum og víðar. Í móum er hann gjarnan í dældum milli þúfna, en í mýrlendi fremur uppi á þúfunum. Einkennandi fyrir mosann er áberandi hliðarsveigja á blöðunum, stundum nærri hringbeygð eins og sigð, en það einkenni má raunar oft sjá á ýmsum öðrum tegundum þessarar ættar.

Myndin fyrir miðju er tekin 4. júlí 2005 í Ísafjarðardal innst í Djúpi

drepaunc1m.jpg (97805 bytes)