Hnappmosaætt

Heiðaþófi

Bartramiaceae

Heiðaþófi (Conostomum tetragonum) myndar þétta, ávala, ljósgræna púða á jarðvegi.   Gróhirzlurnar eru eins og stuttur, egglaga, grænn hnappur með skástæðri trjónu, en roðna með aldrinum.  Hann vex einkum á snjóþungum svæðum upp til heiða, oft í snjódældum, en einnig í víðiflesjum til fjalla.  Á myndinni vinstra megin er hann í grónu snjódældaflagi með kornsúrublöðum og grámullu.

Myndin fyrir miðju er tekin árið 1986, en sú til hægri uppi á Vaðlaheiði í ágúst 1962.

conostet1m.jpg (58716 bytes)

conostet2m.jpg (95222 bytes)