Riddarasveppsætt |
Aníssveppur |
Tricholomataceae |
||
Ilmtrektla eða öðru nafni aníssveppur (Clitocybe odora) er algeng í birkiskógum, en sjaldnar utan þeirra í mólendi. Hún er auðþekkt vegna hins grábláa eða grágrænleita litar. Af henni leggur sterka aníslykt, og er einnig auðvelt að þekkja hana á henni. Hún er talin sæmilegur matsveppur, einkum til að krydda með, enda er hún bragðsterk. |
||||
| Myndin af aníssveppnum er tekin í birkiskógi við Kleifarkot í Mjóafjarðarbotni við Ísafjarðardjúp 26. ágúst 1989. | ||||