Flóra Íslands - Byrkningar

ophioazo2y.jpg (83330 bytes) polypvul1y.jpg (77366 bytes) hupersel1y.jpg (53591 bytes)
Nađurtunga Köldugras Skollafingur

Á Íslandi vaxa um 37 tegundir af byrkningum.  Til byrkninga teljast burknar, elftingar og jafnar, ásamt tungljurtum og álftalaukum. Byrkningar mynda engin frć eins og blómplöntur, og bera engin blóm. Í stađ ţess bera ţeir gróhirzlur sem framleiđa mikiđ magn af gróum. Burknar bera gróhirzlurnar í gróblettum neđan á blöđunum, elftingar bera gróhirzlur í gróaxi efst á toppi stöngulendanna, en jafnar bera ţćr í blađöxlunum. Álftalaukar sem vaxa á kafi í vatni bera gróhirzlurnar í slíđrum viđ blađfótinn.

Ţegar gró byrkninganna spíra, myndast í fyrstu forkím (kynliđur) sem tekur mismunandi langan tíma ađ ţroskast. Forkímiđ er ćtíđ smávaxiđ, stundum grćnt og blađlaga, en er í sumum tilfellum blađgrćnulaust og ţroskast neđanjarđar. Á forkíminu myndast kynfrumur, og á ţví verđur frjóvgun. Af okfrumunni sem myndast viđ samruna kynfrumanna vex síđan upp byrkningurinn sjálfur, elftingin, burkninn, tungljurtin eftir ţví hvađa flokki forkímiđ tilheyrir.  Ţroskun forkímsins getur tekiđ frá fáum vikum (burknar og elftingar) upp í nokkur ár (tungljurtir).

Úti í náttúrunni eru forkímin lítiđ áberandi, en ef ţiđ veljiđ og skođiđ klóelftingu, má sjá mynd af forkími hennar sem tekin var úti í Surtsey fyrir allmörgum árum síđan.