Hnokkmosaætt |
Barðahnokki |
Bryaceae |
||
|
Barðahnokki (Bryum imbricatum) er mjög algengur mosi um land allt. Han vex í afar margvíslegum gróðurlendum, gjarnan í þurrum jarðvegi utan í skurðbökkum og börðum, en einnig á mýraþúfum, í lyngbrekkum, á jarðvegi yfir klettum, í hraunum eða á steyptum veggjum eða gangstéttarrifum eins og sést hér á myndinni. Blöðin eru fagurgræn með sterklegu miðrifi sem gengur fram úr blaðinu og myndar langan odd. Gróhirzlur í fyrstu grænar, síðar gulbrúnar eða dökk brúnar, drúpandi í raka, en geta verið hornréttar eða vísað ofurlítið upp á við í þurru. |
||||
|
Myndin til hægri er tekin 21. júní 2005 á gangstéttarhellum á Arnarhóli í Kaupangssveit. |
||||