Hnokkmosaætt |
Silfurhnokki |
Bryaceae |
||
|
Silfurhnokki (Bryum argenteum) er algengur mosi um allt land. Hann er einkum þekktur fyrir að vaxa í götum og rifum á milli gangstéttarsteina. Hann er því algengur bæði í miðborg Reykjavíkur og miðbæ Akureyrar. Einnig vex hann í klettum og fuglabjörgum. Þetta er afar smár og fíngerður mosi, sprotarnir eru grannir en standa þétt og mynda því nokkuð samfellda, slétta, silfurlitaða eða grágræna skorpu. Hér fyrir neðan má sjá silfurhnokka fylla gangstéttarrifu fyrir utan dvalarheimilið á Kjarnalundi við Akureyri, en til hægri er nærmynd af silfurhnokkasýni tekin í plöntusafni Náttúrufræðistofnunar á Akureyri. |
||||
|
Myndin fyrir miðju er tekin í júní 2002 við dvalarheimilið á Kjarnalundi á Akureyri, en sú til hægri er tekin í ágúst sama ár á Náttúrufræðistofnun. |
||||