Sverðmosaætt |
Sverðmosi |
Bryoxiphiaceae |
||
Sverðmosi (Bryoxiphium norvegicum) er afar sérkennilegur mosi sem myndar stutta, þunna, sverðlaga sprota. Liturinn er oftast grænbrúnn eða brúnn. Gróhirzlur eru afar sjaldgæfar. Sverðmosinn vex oftast inni í hellisskútum í móbergi, á veggjum eða í lofti, eða á þverhnýptu, vindblásnu móbergi. |
||||
Myndirnar eru báðar teknar í Goðalandi við Þórsmörk 25. júní 1988. |
||||